Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn hafa myndað meirihluta í Fjarðabyggð. Flokkarnir, sem voru áður í meirihluta í sveitarfélaginu, undirrituðu nýjan málefnasamning fyrr í dag. Jóna Árný Þórðardóttir verður endurráðin sem bæjarstjóri en hún hefur verið bæjarstjóri frá árinu 2023.„Flokkarnir hafa starfað saman í meirihluta frá árinu 2024 og mátu það svo að farsælast væri að halda því samstarfi áfram enda hafi það gengið vel, byggst á gagnkvæmu trausti og sameiginlegri sýn um framtíð Fjarðabyggðar,“ segir í tilkynningu.Þar segir aukinheldur að helstu áherslumál meirihlutans á komandi kjörtímabili verði áframhaldandi traustur rekstur og lægri skattar, markviss atvinnuuppbygging og uppbygging í íþrótta- og æskulýðsmálum.