Segir ærumeiðandi og rangar fullyrðingar í dómnum

Tómas Guðbjartsson læknir segir alvarlegar rangfærslur um málsatvik og mjög ærumeiðandi fullyrðingar um persónu hans, meintar hvatir og ásetning að finna í nýlegum dómi héraðsdóms í máli fjölskyldu Andemariams Beyene gegn íslenska ríkinu.Ríkið var á dögunum dæmt skaðabótaskylt vegna þess tjóns sem fjölskylda Andemariams varð fyrir vegna andláts hans eftir plastbarkaígræðslu sem hann gekkst undir á Karolinska-sjúkrahúsinu í Svíþjóð. FÉKK EKKI AÐ BERA VITNI Í tilkynningu sem Tómas sendi frá sér í dag segir að í rökstuðningi dómsins sé alvarlega snúið út úr málavöxtum með þeim hætti að atvikalýsing sé í engu samræmi við það sem raunverulega gerðist í málinu. Það hefði án efa mátt leiðrétta hefði verið leitað eftir vitnisburði hans við meðferð málsins.Sjálfur hefði hann ekki fengið tækifæri
Segir ærumeiðandi og rangar fullyrðingar í dómnum
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd