Hópurinn varð til eftir að Doddi litli byrjaði með hlaðvarpið Gleymdar Perlur Áttunnar þar sem hann ræddi við gesti um þessar gleymdu perlur áratugarins.Markmiðið var að vekja upp gamlar og góðar minningar og rifja upp gleymdar perlur.Upp frá því varð til hópurinn Gleymdar Perlur Áttunnar á Facebook og þar kepptist fólk við að pósta gleymdum perlum. Með árunum fjölgaði í hópnum og í dag telur hann yfir fjögur þúsund meðlimi. Síðasta haust fór hópurinn að halda viðburði þar sem þessar perlur fengu að hljóma og fólk fékk að dansa við herlegheitin. Í þessum þætti var hitað upp fyrir 80's klúbbakvöld í miðborg Reykjavíkur og öllu var til tjaldað. Plötusnúðarnir buðu upp á hverja snilldarsyrpuna á fætur annarri og var tilfinningin eins og þú værir komin/n á klúbbinn 1980 og eitthvað.