„Niðurstaða skýrslunnar færir okkur svo sem engin ný sannindi. Þetta eru óverulegar fjárfestingar í því sem skilgreint er sem ótengdur rekstur,“ segir Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.Í gær birtist skýrsla sem unnin var af Hagfræðistofnun Háskóla Íslands og fjallar um eignarhald tuttugu stærstu sjávarútvegsfyrirtækja landsins.Í henni er tiltekið að útgerðirnar hafi átt eignir í lok árs 2024 að andvirði rúmlega 400 milljarða króna í öðrum fyrirtækjum. Af þeirri upphæð var stærstur hluti í öðrum útgerðum með kvóta. Eignir í öðrum íslenskum fyrirtækjum námu 129 milljörðum. FJÁRFESTINGAR Í VIRÐISKEÐJU SJÁVARÚTVEGS Heiðrún segir ágætt að fá skýrsluna, þótt hún sé ekki sú fyrsta sinnar tegundar.Hún segir að velta megi fyrir sér hvað teljist vera