Bókaútgefendur segja niðurstöðu skýrslu Þróunarsjóðs námsgagna skýra. Skortur sé á námsgögnum og litlu fjármagni sé veitt til þróunar þeirra. Verulega litlu fjármagni sé varið til kaupa á námsgögnum frá sjálfstæðum bókaútgefendum.Heiðar Ingi Svansson, framkvæmdastjóri Iðnú útgáfu og fyrrum formaður Félags íslenskra bókaútgefenda, fagnar því að skýrslan sé komin út en niðurstöður hennar séu engu að síður slæmar.„En það er nauðsynlegt fyrir alla sem málið varða að þetta sé dregið svona fram og þetta sé óumdeilt, þetta eru rauntölur sem þarna eru lagðar fram,“ segir hann.„En það er líka vonandi núna að þessi skýrsla verði ekki bara birt og fólk hneykslist á niðurstöðunni heldur núna verður að grípa í enda sýnir hún það að þetta ástand getur ekki varað svona lengur,“ segir Heiðar sem telur að