„Þetta eru auðvitað háar tölur,“ segir Dagur B. Eggertsson um þær upphæðir sem fram komu í skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands sem birtist í gær.Samantekt hennar sýndi að tuttugu stærstu sjávarútvegsfyrirtækin áttu rúma 400 milljarða í öðrum rekstri í lok árs 2024. Fjórar útgerðir eiga um tvo þriðju þeirrar upphæðar.Það var að beiðni Dags og annarra alþingismanna sem skýrslan var unnin. Hann segir mikilvægt að upplýsingarnar í skýrslunni komi fram og að gegnsæi ríki um eignarhald í sjávarútvegi. „ALLS EKKI HEILDARMYND“ Í skýrslunni má sjá að meirihluti eigna útgerðanna í öðrum fyrirtækjum var tilkominn vegna fjárfestinga á tíu ára tímabili. Dagur segir skýrsluna varpa ljósi á þróun sem hafi átt sér stað mjög hratt.„Það vekur strax athygli að mjög stórar þekktar eignir sem eru í hö