Ný skýrsla um eignarhald sjávarútvegsfyrirtækjanna sýnir aðeins „toppinn á ísjakanum“ að sögn þingmanns Samfylkingarinnar, sem hyggst fara fram á ítarlegri upplýsingar. Tuttugu stærstu sjávarútvegsfélög landsins eiga samtals um 400 milljarða í öðrum félögum en í skýrsluna vantar eignir upp á milljarða þar sem notast var við afar rúma túlkun á því sem telst tengdir aðilar.