Samruni kvikmyndaveranna Warner Bros. Discovery og Paramount Skydance hefur verið mikið á milli tannanna á fólki, sérstaklega í Hollywood, undanfarna mánuði. Eftir uppboðsstríð við streymisveituna Netflix tókst Paramount að tryggja sér Warner Bros. á 111 milljarða Bandaríkjadala, jafnvirði um 13.800 milljarða íslenskra króna.Stjórnendur Netflix vildu ekki jafna tilboðið og sögðu að ekki væri lengur fjárhagslega aðlaðandi að kaupa fyrirtækið á þessu verði. Með kaupunum kemst Paramount yfir yfirgripsmikið kvikmyndasafn, streymisveituna HBO og önnur fjölmiðlafyrirtæki í Warner Bros. Discovery.Yfirvöld þurfa þó að samþykkja samrunann en ef af honum verður verða aðeins fjögur stór kvikmyndaver eftir í Bandaríkjunum. Andstaðan við samrunann hefur verið mikil og hafa rúmlega fimm þúsund manns í H