Nína Hjálmarsdóttir skrifar:La biennale di Venezia, Feneyjatvíæringurinn, stærsta og mikilvægasta listahátíð heims, eins konar Ólympíuleikar myndlistarinnar, er nú haldinn í 61. skiptið í hinni sökkvandi borg. Ég lét mig ekki vanta á þriggja daga foropnunina, ásamt föruneyti listavina og kunningja frá Reykjavík. Dagana fyrir ferðalagið hafði ég átt í fleiri en einu og fleiri en tveimur samtölum um hvaða samsetningar á klæðnaði við ættum að taka með í handfarangrinum okkar, svo við yrðum ekki landinu okkar til skammar hérna meðal rjóma alheimslistasenunnar. Það er nefnilega ekki síður skemmtilegt að horfa á listina þegar maður gengur inn á hátíðarsvæðið, Giardini og Arsenale, og horfa á allt þetta afskaplega fallega og vel klædda fólk. Maður þreytist líka ekki á því að grípa sér einn aperol