Fleiri Íslendingar fara þegar stórmótin eru haldin nær

Ekki er búist við því að margir Íslendingar ferðist sérstaklega vestur um haf fyrir HM í fótbolta sem hefst í næsta mánuði. Þeir sem það gera, verða þó flestir á eigin vegum.Heimsmeistaramótið í fótbolta er haldið í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó og hefst 11. júní. Í fyrsta sinn verða 48 þátttökuþjóðir og leikirnir alls 104. Mikið hefur verið rætt um miðaverð í aðdraganda mótsins og fjallað um að allt að sjö sinnum dýrara verður fyrir hinn almenna stuðningsmann að fylgja sínu liði en á HM í Katar fyrir fjórum árum.Miðasala fer fram beint í gegnum Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA. KSÍ hefur ekki milligöngu um miða fyrir Íslendinga og samkvæmt þeim forsvarsmönnum ferðaskrifstofa hér á landi sem fréttastofa hefur rætt við er ekki búist við mörgum Íslendingum sem ferðast vestur um haf sérstak
Fleiri Íslendingar fara þegar stórmótin eru haldin nær
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd