Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur og formaður Jafnaðarmannaflokksins, er aftur á ný komin með stjórnarmyndunarumboð. Frederiksen fór á fund konungs nú skömmu eftir hádegi í Danmörku. Þetta er þriðja tilraun Dana til að mynda stjórn, en tæpir tveir mánuðir eru frá þingkosningum.