Bæjarráð á Akureyri samþykkti á dögunum að koma að verkefni lögreglunnar á Norðurlandi eystra að taka í notkun löggæsludróna í Hrísey og Grímsey. Þegar eru tveir löggæsludrónar á Akureyri. Bergur Jónsson, yfirlögregluþjónn á Norðurlandi eystra, segir þetta mikilvægt landsbyggðarmál fyrir lögreglu í stærri umdæmum þar sem ekki er mönnuð löggæsla allan sólarhringinn.„Þetta hefur bara sýnt sig nú þegar að vera gott viðbótartæki fyrir lögregluna. Fyrir öryggi lögreglumanna, fyrir öryggi almennings þá líka. Ég get ekki betur séð en þetta verkefni muni skila fallegri niðurstöðu,“ segir Bergur. OFT SNEGGRI EN MANNAÐIR LÖGREGLUBÍLAR Drægni lögregludrónanna er um sex kílómetrar og þeir hafa þegar komið að góðum notum við ýmis verkefni á Akureyri. Þeir eru oft sneggri að bregðast við en mannaðir