Sótt að Vladímír Pútín á heimavelli

Vladímír Pútín, forseti Rússlands, er sagður óttast ráðabrugg innan eigin raða og hafa gripið til harðra aðgerða til að verja stöðu sína. Þetta kemur fram í skýrslu evrópskrar leyniþjónustu sem lak til fjölda fjölmiðla fyrir rúmri viku.Tíðindin sem borist hafa frá Moskvu undanfarið hafa tæpast glatt Pútín. Rússneski rannsóknarmiðillinn Important Stories hefur birt skýrsluna í heild sinni og CNN, Financial Times og fleiri vestrænir miðlar hafa einnig komist yfir hana og fjallað um efni hennar.Mikið var um dýrðir í Moskvu laugardaginn 9. maí, á árlegri sigurhátíð þar sem uppgjafar Þjóðverja í síðari heimsstyrjöldinni var minnst. Dýrðin var þó minni en oft áður. Færri hermenn gengu um Rauða torgið og engin hertól voru sýnd. Það hefur ýmist verið skýrt með því að þau séu öll í notkun í Úkraínu
Sótt að Vladímír Pútín á heimavelli
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd