Í nýrri skýrslu Þróunarsjóðs námsgagna kemur fram að framlög til þróunar námsgagna eru innan við helmingur þess sem þau voru fyrir tveimur áratugum.Dagný Björk Arnljótsdóttir er umsjónarkennari í 5. bekk í Laugarnesskóla og fór yfir þau námsgögn sem hún styðst við í sinni vinnu. Sumar námsbókanna eru um 20 ára gamlar og hafa ekki verið endurútgefnar. Til dæmis sé skortur á stærðfræðibókum fyrir börn á miðstigi.Mikill tími fari í að vinna námsefni úr þeim gögnum sem eru til reiðu og oft og tíðum endurspegli námsgögnin ekki nútímann eða það samfélag sem börnin búa í.