Það vakti áhyggjur ónefndra, ábyrgra borgara þegar þeir sáu bíl sem rásaði á veginum í nótt. Eftir að hafa tilkynnt um ökumanninn til lögreglu veittu þeir bílnum eftirför uns lögregla kom á staðinn. Bílnum hafði þá verið ekið margoft í vegrið, steypta veggi og annað sem á vegi hans varð. Ökumaðurinn var handtekinn og vistaður í fangageymslu.