Í nýju meirihlutasamkomulagi stjórnarflokkanna á Akureyri var kveðið á um að Berglind Ósk Guðmundsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, yrði bæjarstjóri, fyrst kjörinna fulltrúa á Akureyri í 16 ár. Það þýðir að Ásthildur Sturludóttir lætur af störfum og það strax í lok næstu viku. Í samtali við fréttastofu í apríl sagði Ásthildur að hún hefði hug á að vera áfram bæjarstjóri ef krafta hennar væri óskað.„Ég get ekki sagt að þetta hafi komið mér mjög mikið á óvart. Það er ekkert launungarmál að ég hefði alveg viljað vera lengur,“ sagði ÁsthildurUpphaflega voru það L-listinn, Framsóknarflokkurinn og Samfylkingin sem réðu Ásthildi til starfa árið 2018 og framlengdu síðan L-listinn, Miðflokkur og Sjálfstæðisflokkur ráðningu hennar árið 2022. > Þetta samstarf hefur bara gengið óaðfinnanlega. Svo