„Fyrir mér getur brúðuleikhús sagt meira en venjulegt leikhús af því að með brúðum er hægt að tala um það sem er erfitt að tala um og gert það fallega og blíðlega. Af því að brúður eru bara myndlíkingar,“ segir Greta Clough, stofnandi brúðuleikhússins Handbendis á Hvammstanga. Rót, nýtt verk úr smiðju Handbendis, verður sýnt á Listahátíð í Reykjavík, og þau Greta og Sigurður Arent Jónsson, sem fer með hlutverk í sýningunni, litu við í Víðsjá á dögunum til að segja frá sýningunni.Verkið Rót gerist árið 1995 og fjallar um strákinn Óla sem elst upp í sveit. Pabbi hans er íslenskur en mamma hans frá Paragvæ. Líf Óla tekur miklum breytingum þegar amma hans frá Paragvæ heimsækir fjölskylduna.Greta segir að við undirbúning sýningarinnar hafi hún viljað komast að því hvernig börnum með ólíkan menn