NATO ekki eingöngu til verndar Evrópu heldur líka Bandaríkjanna

Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins sagði í lokaræðu sinni á fundi utanríkisráðherra NATO í Helsingborg í Svíþjóð sem lauk í gær að varnir Bandaríkjanna byrji í Noregi. Norska ríkisútvarpið greinir frá.Mark Rutte sagði í ræðu sinni að þjóðir hvor sínum megin við Atlantshafið þyrftu á hver annarri að halda. Ef kjarnorkukafbátar Rússa komast fram hjá Noregi þá geta þeir farið áleiðis að ströndum Bandaríkjanna og ógnað Bandaríkjunum. Þetta sé aðeins eitt dæmi um það að NATO sé ekki eingöngu til að vernda Evrópu heldur líka Bandaríkin.Framkvæmdastjórinn sagði að Evrópuþjóðir myndu taka aukinn þátt í varnarútgjöldum bandalagsins. Hann sagði að fundurinn hefði að miklu leyti snúist um það hvernig bandalagið gæti orðið enn sterkara, sérstaklega með frekari vopnaframleiðslu. Hann sagði að ban
NATO ekki eingöngu til verndar Evrópu heldur líka Bandaríkjanna
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd