Handteknir grunaðir um að hafa ekið á gangandi vegfaranda

Lögregla var kölluð til í gær eftir að ekið var á gangandi vegfaranda í umdæmi lögreglustöðvar 4 sem þjónustar Grafarvog, Mosfellsbæ og Árbæ. Skömmu síðar sáust tveir einstaklingar hlaupa frá bifreið í Austurbæ Reykjavíkur. Í ljós kom að þeir höfðu ekið bifreiðinni sem lögregla leitaði að og voru báðir handteknir og vistaðir á lögreglustöð vegna málsins. Í umdæmi lögreglustöðvar 1 sem þjónustar Austurbæ, Miðbæ, Seltjarnarnes og Vesturbæ var ökumaður stöðvaður grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Sá var einnig með fíkniefni meðferðis og reyndist vera á fjórum nagladekkjum. Annar einstaklingur í sama umdæmi var handtekinn fyrir að hafa brotist inn í bifreiðar í miðbænum. Tveir ökumenn voru handteknir fyrir ölvun við akstur í eða við miðbæinn. Hvorugur kannaðist við að hafa ekið bílnum
Handteknir grunaðir um að hafa ekið á gangandi vegfaranda
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd