Víða milt en dálítil væta suðaustan til

Milt veður verður víðast hvar í dag en þó dálítil væta suðaustan til. Austlæg gola eða kaldi og víða skýjað en úrkomulítið. Síðdegis og í kvöld bætir aðeins í vind og fer að rigna, fyrst sunnan til á landinu. Þá snýst í sunnan og suðvestan vindátt.Á morgun er svo útlit fyrir skúraveður en að mestu þurrt og bjart á Austfjörðum. Væntanlega verður hlýjast þar á landinu og mun hiti ná allt að 15 stigum. Hægari vindur á mánudaginn en vestan átt á bilinu 8 til 13 metrar á sekúndu við suðurströndina síðdegis. Víða skúrir, sérstaklega seinnipartinn. Hiti á bilinu 7 til 13 stig.Búast má við vætu víða yfir helgina.RÚV / Víðir Hólm Ólafsson
Víða milt en dálítil væta suðaustan til
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd