Pútín heitir hefndum eftir að hafa sakað Úkraínumenn um árásir á stúdentagarða

Rússlandsforseti hefur beðið varnarmálaráðuneytið að undirbúa miklar árásir á Úkraínu til að hefna árása sem hann segir Úkraínumenn hafa gert á stúdentagarða í Lugansk-héraði í Úkraínu í gær.Samkvæmt upplýsingum frá rússneskum stjórnvöldum voru sex drepnir og 39 særðust í drónaárás í gær á stúdentagarða í borginni Starobilsk í Lugansk. Þá er fimmtán manna enn saknað eftir árásina, samkvæmt Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Hann segir nema á aldrinum 14–18 ára hafa verið á stúdentagörðunum. Pútín segir árásina vera hryðjuverk og hann hafi beðið varnarmálaráðuneytið að undirbúa miklar gagnárásir.Þessar upplýsingar frá Pútín um árásina hafa ekki verið sannreyndar enn. Í frétt breska ríkisútvarpsins um árásina kemur fram að engar ljósmyndir eða myndskeið hafi verið sýnd í rússnesku sjónvarpi af
Pútín heitir hefndum eftir að hafa sakað Úkraínumenn um árásir á stúdentagarða
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd