„Það lýsir að ég held svo vel þessari dýnamík á milli Ratcliffes og vopnfirskrar alþýðu sagan af því þegar einn góður drengur var hérna í sunnudagsfjallgöngu með fjölskyldunni og þau stoppuðu að fá sér nesti og dóttir hans var að berjast við að reyna að troða papparörinu ofan í kókómjólkurfernuna á meðan þau horfðu á Ratcliffe taka upp á þyrlunni inni í Ytri-Hlíð og fljúga nokkra kílómetra úteftir á skotsvæðið sitt. Ég held að þetta segi kannski alla söguna um hvernig þetta er í heiminum í dag: Þeir ríkustu þeir komast upp með allt saman en það er alþýðan sem þarf að borga brúsann,“ segir Bjartur Aðalbjörnsson, rúmlega 30 ára Vopnfirðingur og sveitarstjórnarmaður til átta ára. Hann ræðir þarna um stöðu Jims Ratcliffes í bænum og í sveitarfélaginu.Jim Ratcliffe hefur eðlilega sett mark sitt