Átta bandarískir þingmenn heimsækja Svalbarða í dag. Norska ríkisútvarpið segir að öldungadeildarþingmaðurinn og repúblikaninn Lisa Murkowski sé í forsvari fyrir hópinn auk demókratans Jeanne Shaheen.Þingmennirnir heimsækja meðal annars Háskólann í Tromsø – Háskóla Norðurslóða í Noregi, sem er nyrsti háskóli heims. Rektorar skólans buðu þingmönnunum í heimsókn til að kynna sér rannsóknir á norðurslóðum sem eru gerðar við háskólann. Þingmannahópurinn fer einnig í stutta heimsókn til Grænlands áður en hann fer til Noregs og Svalbarða.Murkowski, sem er öldungadeildarþingmaður fyrir Alaska, hefur látið sig málefni Grænlands og Norðurslóða miklu varða. Í heimsókn til Grænlands í febrúar kvaðst hún miður sín vegna hótananna og þess uggs sem Donald Trump hefði kveikt í brjósti Grænlendinga. Hún s