Átta námuverkamenn látnir og 38 enn fastir í námu eftir sprengingu

Minnst átta námuverkamenn eru látnir eftir gassprengingu sem varð í Liushenyu kolanámunni í Shanxi-héraði í Kína í gær. 38 námuverkamenn eru enn fastir inni í námunni og er ástand sumra talið alvarlegt.Alls voru 247 verkamenn við störf í námunni þegar sprengingin varð en búið er að ná 201 úr námunni. Ekki er vitað hvað olli sprengingunni en magn kolsýrings er sagt hafa verið yfir mörkum í námunni.Shanxi er eitt fátækasta hérað Kína en jafnframt eitt helsta kolaframleiðslusvæði Kína. Öryggi við námuvinnslu hefur batnað mikið á undanförnum áratugum en slys eiga sér oft stað þar sem öryggisreglum er ekki fylgt.Kína nýtir allra þjóða mest af kolum og er með mestu losun gróðurhúsalofttegunda, þrátt fyrir að orkuskipti yfir í endurnýjanlega orkugjafa gangi hratt fyrir sig í landinu.
Átta námuverkamenn látnir og 38 enn fastir í námu eftir sprengingu
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd