Litarmengun hefur sett mark sitt á Varmá í Mosfellsbæ síðustu daga. Mengunin berst úr Skammadal þar sem Veitur bora eftir heitu vatni. Heilbrigðiseftirlit Mosfellsbæjar óttast að mengunin geti haft áhrif á lífríki árinnar og gagnrýnir vinnubrögð við framkvæmdina.Hörður Þorsteinsson, framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlitsins í Mosfellsbæ, segir að setið sem berist í ána geti haft áhrif á vistkerfið í ánni og að smáfuglar hafi jafnvel fest sig í leirnum, „þannig þetta er ekki alveg nógu góð staða.“Hann segir að efnið sem berst í ána og valdi mengun sé náttúrulegt efni, berg sem verið er að bora.Samkvæmt Herði voru framkvæmdir stöðvaðar fyrr í vikunni í samstarfi við sveitarfélagið eftir að mengunarinnar varð vart. Hann segir þó að breytt lagaumhverfi takmarki aðkomu heilbrigðiseftirlitsins að