Kakkalakkaflokkurinn Janta hefur nýlega slegið í gegn á samfélagsmiðlinum Instagram. Aðgangurinn bætti við sig rúmlega 19 milljón fylgjendum á miðlinum á innan við viku sem er næstum tvöfaldur fjöldi fylgjenda ríkisstjórnarinnar.Nafn flokksins er bjögun á nafni ríkisstjórnarflokksins Bharatiya Janata sem hefur reynt að stöðva útbreiðslu kakkalakkaflokksins á samfélagsmiðlum. Janta er þó ekki raunverulegur stjórnmálaflokkur. UMMÆLI DÓMARANS HÓFU BYLGJUNA Uppátækið á rætur sínar að rekja til ummæla Surya Kant, forseta hæstaréttar Indlands. Hann sagði í dómsal fyrr í mánuðinum að sum ungmenni væru eins og kakkalakkar — ófær um að verða sér úti um vinnu. Þrátt fyrir að skýra síðar að hann hefði átt við fólk sem nýtti sér falsaðar gráður til að fá störf í tilteknum starfsgreinum vöktu ummæli