Nýr bíll Blóðbankans var afhentur í Kringlunni á dögunum en hélt svo norður yfir heiðar til Akureyrar þar sem heimastöð hans verður. Bíllinn var hannaður af Bílaklæðningu eftir forskrift Blóðbankans og tókst að mati þeirra afar vel. Nýi bíllinn er töluvert minni og léttari en gamli blóðbíllinn og hefur ýmsa eiginleika til þess að liðka fyrir blóðgjöf - enda er bíllinn auðveldur í akstri og getur stoppað hvar sem er.Hanna Vigdís Jóhannesdóttir, hjúkrunarfræðingur í Blóðbankanum á Akureyri, segir bílinn léttan og þægilegan, og að það sé kostur að þurfa ekki atvinnubílstjóra. Hún keyrði bílinn sjálf norður.„Ég gæti faktískt séð stoppað við hvert bæjarhlað og tekið blóð,“ segir Hanna Vigdís. ÞJÓNUSTA VIÐ LANDSBYGGÐINA Efnt var til nafnasamkeppni á nýja bílinn og fékk hann nafnið Björg. Hann