Verðmætar eignir undanskildar vegna umdeildrar túlkunar á tengslum

Meginniðurstaðan í nýrri samantekt Hagfræðistofnunar, sem unnin var að beiðni þingsins, er að umsvif stærstu útgerðarfyrirtækja landsins og eigenda þeirra í ótengdum rekstri hafi aukist mikið á síðastliðnum áratug. Að 20 kvótahæstu útgerðir landsins eigi nú ríflega 400 milljarða eignir í öðrum fyrirtækjum, hvort sem er í öðrum útgerðum eða óskyldum rekstri. Ríflegur meirihluti sé tilkominn vegna fjárfestinga á tíu ára tímabili, frá 2014–2024.  Hagfræðistofnun flokkar þessar 400 milljarða eignir útgerðanna í þrennt. Stærstur er sá hluti eigna sem kom til vegna fjárfestinga í öðrum útgerðarfélögum, eða 230 milljarðar króna. Næststærsti hlutinn eru svo eignir í öðrum íslenskum fyrirtækjum, tæplega 130 milljarðar, og þriðji hlutinn, erlendar eignir að verðmæti 50 milljarða króna.Þessar hundruð
Verðmætar eignir undanskildar vegna umdeildrar túlkunar á tengslum
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd