Forsetabíllinn varð fyrir skemmdum í grjótkasti

Forsetabíll forseta Íslands er töluvert skemmdur eftir mikið grjótkast, sem fór yfir bílinn á Landvegi í Holtum í Rangárþingi ytra í gær, þegar forsetahjónin voru þar á ferðinni í opinberri heimsókn í Laugalandsskóla.Nýbúið er að leggja á veginn og því mikið um laust grjót á honum. Forsetabíllinn var að mæta tveimur vörubílum sem fóru heldur hratt sem hafði þessar afleiðingar. Tveir aðrir bílar skemmdust, m.a. brotnuðu rúður í þeim. Lögreglan á Suðurlandi var kölluð til og tók niður skýrslu vegna atvikanna.Heilmikil sprenging í malarnámu tók einnig á móti forsetahjónunum í gær þegar þau voru á leiðinni í heimsókn í leik- og grunnskólann. Grjót þeyttist út um allt og mikið ryk myndaðist.
Forsetabíllinn varð fyrir skemmdum í grjótkasti
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd