Lars Løkke Rasmussen, formaður Moderaterne, vill að Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur og formaður Jafnaðarmanna, fái stjórnarmyndunarumboðið á morgun. Hann neitar að styðja borgaralega minnihlutastjórn undir stjórn Troels Lund Poulsen, formanns Venstre, og þarf Poulsen því að skila stjórnarmyndunarumboðinu. Hann fer á fund konungs í kvöld. Rasmussen sagði við fjölmiðla að loknum fundi hans og Poulsens í dag að óráðlegt væri að mynda minnihlutastjórn úr bláu blokkinni. „Það er ekki það sem Danmörk þarf varðandi stöðu öryggismála.“Rasmussen hafi viljað sjá Poulsen reyna að teygja sig meira yfir miðjuna.Lars Løkke Rasmussen, formaður Moderaterne, og Mette Frederiksen, formaður Jafnaðarmanna og forsætisráðherra.EPA / Mads Claus Rasmussen