Stærstu útgerðirnar áttu 400 milljarða í öðrum félögum

Samstæður stærstu útgerða landsins og tengd félög þeirra áttu í lok árs 2024 eignir að andvirði 406,3 milljarða króna í öðrum fyrirtækjum. Af þeirri upphæð var stærstur hluti í öðrum útgerðum með kvóta, eða 227,6 milljarðar, en eignir í öðrum íslenskum fyrirtækjum námu samtals tæplega 129 milljörðum.Þetta kemur fram í skýrslu atvinnuvegaráðherra um eignarhald 20 stærstu útgerðarfélaga landsins í íslensku atvinnulífi árið 2025 sem unnin var af Hagfræðistofnun Háskóla Íslands að beiðni Alþingis.Fjórar útgerðir eiga samtals 65 prósent þessara rúmlega 400 milljarða. Það eru Brim, Útgerðarfélag Reykjavíkur, Fisk Seafood og Síldarvinnslan. Þær eiga á bilinu 62,8 til 73,1 milljarð í öðrum fyrirtækjum. Á heildina litið á Brim mestar eignir í öðrum félögum.Stærstan hluta í fyrirtækjum í íslensku at
Stærstu útgerðirnar áttu 400 milljarða í öðrum félögum
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd