Breytingar í forystu Grundarfjarðarbæjar

Birkir Jón Jónsson verður næsti bæjarstjóri Grundafjarðarbæjar. Hann tekur við af Björgu Ágústsdóttur sem gegnt hefur starfi bæjarstjóra frá 2018.Fram kemur í tilkynningu að samkomulag hafi náðst um að Birkir Jón taki við stöðu bæjarstjóra. Hann búi yfir fjölbreyttri reynslu úr stjórnsýslu og stjórnmálum. Ráðning Birkis verður formlega staðfest þegar ný bæjarstjórn tekur til starfa.Listi Framsóknar og félagshyggjufólks hlaut 56% atkvæða í Grundarfjarðarbæ í sveitarstjórnarkosningunum og fjóra fulltrúa í bæjarstjórn.Sjálfstæðisflokkurinn og óháðir fengu þrjá fulltrúa.Á myndinni eru þau sem skipta lista Framsóknar og félagshyggjufólks í Grundarfjarðarbæ ásamt Birki Jóni.Aðsend / Birkir Jón Jónsson
Breytingar í forystu Grundarfjarðarbæjar
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd