Oddvitar í Reykjavík halda spilunum þétt að sér

Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík, fundaði einslega með oddvitum Miðflokksins, Viðreisnar og Framsóknar í dag.Á fundunum var möguleg myndun nýs meirihluta í borginni rædd. Öllum fundunum er lokið en oddvitarnir vildu ekki veita viðtöl að þeim loknum.Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur Hildur ekki boðað fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn til fundar en að öllum líkindum dregur til tíðinda um formlegar meirihlutaviðræður um helgina.
Oddvitar í Reykjavík halda spilunum þétt að sér
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd