Lars Løkke Rasemussen, formaður Moderaterne, ætlar ekki að styðja hægristjórn Troels Lund Poulsens, formanns Venstre. Þetta varð ljóst eftir fund þeirra tveggja síðdegis.Poulsen fékk stjórnarmyndunarumboðið eftir að ekki hafði gengið hjá Mette Frederiksen, forsætisráðherra og formanni Jafnaðarmanna, að mynda stjórn. Hann hóf formlegar tilraunir til að mynda ríkisstjórn 11. maí og hefur fundað með leiðtogum allra flokka.58 dagar eru síðan þingkosningar voru í Danmörku og íbúar verið án nýrrar ríkisstjórnar síðan. Aldrei hefur tekið svona langan tíma að mynda ríkisstjórn í landinu.Í dag dró svo til tíðinda þegar Poulsen og Rasmussen hittust á fundi. Eftir fundinn sagði Rasmussen við fjölmiðla að hann gæti ekki stutt svokallaða VLAK-stjórn, myndaða af Venstre, flokki Poulsen, Frjálslynda band