Búa sig undir fyrstu hitabylgju sumarsins

Íbúar í Portúgal, á Spáni, Frakklandi og Bretlandi búa sig undir fyrstu hitabylgju sumarsins. Hiti átti víða að fara yfir þrjátíu stig í París, Lundúnum og 35 stig í Suðvestur-Frakklandi. Hiti fór upp í tæplega fjörutíu stig á Suðvestur-Spáni strax í gær.Veðurstofa Frakklands sagði nánast öruggt að hitamet yrðu slegin fyrir maímánuð. Veðurstofa Bretlands hefur gefið út viðvaranir vegna hita fyrir helgina. Hiti gæti náð þrjátíu og þremur stigum á mánudag, sem er hæsti hiti sem mælst hefur í maí. Síðasta met er frá 1944 þegar 32,8 stiga hiti mældist.Manneskja hleypur með fram ströndinni og pálmatrjám við Southend-on-Sea í Essex í Bretlandi 22. apríl 2026.AP/PA / Stefan Rousseau
Búa sig undir fyrstu hitabylgju sumarsins
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd