Vísindamenn við Oxford-háskóla í Bretlandi vinna hörðum höndum að því að þróa nýtt bóluefni við ebólu. Það gæti verið tilbúið fyrir klínískar rannsóknir innan tveggja til þriggja mánaða.Ebólufaraldur braust út í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó í lok apríl. 177 hafa látist og grunur er um 750 smit. Flest hafa greinst í Kongó en nokkur hafa komið upp í nágrannaríkinu Úganda.Fimm afbrigði eru til af ebólu en þrjú þeirra hafa valdið faröldrum: ebóluveira, súdanveira og bundibugyoveira. Faraldurinn sem er í gangi núna er vegna sjaldgæfa afbrigðisins Bundibugyo-veiru. Það greindist fyrst í faraldri í Bundibugyo-héraði í Úganda árið 2007.Afbrigðið hefur ekki sést í rúman áratug og það eru hvorki til lyf né bóluefni gegn því. Dánartíðni afbrigðisins er 30-50%.Bóluefnið á enn eftir að fara í gegnum ran