Verkefnið Sveitasæla hlaut Foreldraverðlaun Heimilis og skóla í ár. Verkefnið býður nemendum á unglingastigi tækifæri til að taka þátt í daglegum bústörfum á bænum Hrafnagili og þar kynnast nemendur íslenskum landbúnaði af eigin raun, taka þátt í fjölbreyttum verkefnum og öðlast dýrmæta reynslu af ábyrgð, samvinnu og tengingu við nærumhverfi sitt.