Skjóti skökku við að Tómas hafi ekki fengið að svara fyrir sig fyrir dómi

Formaður Læknafélags Íslands gagnrýnir að Tómas Guðbjartsson hafi ekki fengið að bera hönd fyrir höfuð sér fyrir dómi. Hún segir lækna sammála um að mál eins og plastbarkamálið megi aldrei endurtaka sig.Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu að ríkið væri bótaskylt vegna stórfellds gáleysis Tómasar Guðbjartssonar læknis, sem hafi leitt til andláts Andemariams Beyene. Andemariam fékk ígræddan plastbarka í Svíþjóð árið 2011, fyrstur manna, fyrir milligöngu Tómasar, og lést þremur árum síðar.Dómur héraðsdóms er mjög afdráttarlaus um ábyrgð Tómasar í málinu. Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, segir tvennt hafa komið á óvart.„Niðurstaða dómsins er að einhverju leyti á skjön við plastbarkaskýrsluna frá 2017, rannsóknarskýrslu Páls Sveinssonar, að því er varðar ábyrg
Skjóti skökku við að Tómas hafi ekki fengið að svara fyrir sig fyrir dómi
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd