Fyrsta bókin á kínversku til að hljóta alþjóðlegu Booker-verðlaunin

Skáldsagan Taiwan Travelogue eftir Yáng Shuāng-zǐ hlaut in alþjóðlegu Booker-verðlaun sem afhent voru við hátíðlega athöfn í Tate Modern-safninu í London í vikunni. Þetta er fyrsta bókin sem upphaflega er skrifuð á mandarin kínversku til að hljóta verðlaunin.Lin King þýðir verkið og þær Yáng hljóta 50 þúsund pund, eða um átta milljónir króna, í verðlaun. Þær eru einnig fyrstu taívönsku verðlaunahafarnir til þessa en verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi skáldskap í enskri þýðingu.Bókin er sögð þýðing á enduruppgötvuðum ævisögum sem skrifaðar eru frá sjónarhóli rithöfundar sem siglir til Taívans árið 1938, sem þá var hernumið af Japan, og leggur upp í mikið ferðalag um matargerð í fylgd túlks sem hún verður ástfangin af. Verkið inniheldur skáldaðar neðanmálsgreinar og eftirmálsgreinar e
Fyrsta bókin á kínversku til að hljóta alþjóðlegu Booker-verðlaunin
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd