Forsvarsmenn hótelkeðjunnar Iceland Hotel Collection by Berjaya segjast hafa neyðst til að grípa til erfiðra aðgerða og ljúka ráðningarsambandi við starfsfólk sitt á Hilton Nordica og Natura-hótelunum. Uppsagnirnar séu þó framkvæmdar í samræmi við ráðgjöf lögfræðinga og er bundið vonir við að öllu starfsfólkinu verði boðið starf þegar Íslandshótel tekur við rekstri fasteignanna.