Logi lætur allan ágóða tónleika sinna renna til liðsfélaga

Allur ágóði af tónleikum Loga Tómassonar í Víkinni í júní rennur til Ingvars Jónssonar, markvarðar Víkings, sem nýlega greindist með krabbamein. Þeir Logi og Ingvar spiluðu saman með fótboltaliði Víkings um tíma.Þetta kemur fram í færslu sem Logi birti á Instagram-reikningi sínum í dag.Logi, sem gengur undir listamannsnafninu Luigi, heldur tónleika í Víkingsheimilinu 18. júní. Þar flytur hann lög af nýrri níu laga plötu sem kom út í dag en hann hefur unnið að tónlist undanfarin ár samhliða knattspyrnuferlinum. Logi spilar fyrir hjá Samsunspor í Tyrklandi og er einnig leikmaður íslenska landsliðsins.„Nýverið greindist fyrrum liðsfélagi og góður vinur óvænt með krabbamein,“ skrifar Logi á Instagram.„Við Ingvar spiluðum saman í meistaraflokki Víkings og óhætt er að segja að eftir að hafa kynn
Logi lætur allan ágóða tónleika sinna renna til liðsfélaga
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd