Reiðir mótmælendur kveiktu í tjöldum sem voru notuð til að einangra sjúklinga með ebólu á spítala í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó í gær. Stjórnmálamaður segir mótmælendur illa upplýsta um sjúkdóminn og ekki trúa því að hann sé raunverulegur.Mótmælin brutust þegar fjölskyldu manns, sem lést úr ebólu, var neitað um að fá lík hans til greftrunar. Luc Malembe Malembe, stjórnmálamaður í borginni, sagði við breska ríkisútvarpið, BBC, að mótmælendur hefðu kastað hlutum að spítalanum og að tvö sjúkratjöld, sem notuð voru til að einangra sjúklinga, hefðu brunnið til kaldra kola.Ringulreið hafi skapast og lögreglan skotið viðvörunarskotum að mótmælendum til að dreifa hópnum. Sjúkrahúsið er nærri borginni Bunia í austurhluta landsins þar sem flest smit hafa greinst. Hermenn komu starfsfólki til varnar