Sjálfstæðisflokkurinn hefur í dag viðræður við Viðreisn um myndun meirihluta í bæjarstjórn Mosfellsbæjar. Sjálfstæðisflokkurinn fékk fimm bæjarfulltrúa af ellefu og Viðreisn einn í kosningunum um síðustu helgi.Hilmar Gunnarsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ, segir í tilkynningu um viðræðurnar að markmiðið sé að mynda traustan og málefnalegan meirihluta sem geti hafist handa við að vinna að þeim verkefnum sem fram undan séu í bænum.Viðreisn var í meirihlutasamstarfi við Framsóknarflokkinn og Samfylkinguna á síðasta kjörtímabili. Sá meirihluti féll í kosningunum. MOSFELLSBÆR – LOKATÖLUR Lokatölur frá 17. maí 2026 kl. 02:59 Nánari greiningu má finna á ruv.is/kosningar.