Lögmaður fjölskyldu Andemariams Beyene, sem lést eftir plastbarkaígræðslu, segir dóm í málinu ekki aðeins áfellisdóm yfir Tómasi Guðbjartssyni lækni, Landspítalanum og íslenska ríkinu, heldur einnig yfir læknadeild Háskóla Íslands og Læknafélagi Íslands.Íslenska ríkið var dæmt bótaskylt vegna stórfellds gáleysis Tómasar, sem að mati héraðsdóms leiddi með beinum og fyrirsjáanlegum hætti til tjóns og andláts Andemariams, tæpum þremur árum eftir að plastbarkinn var græddur í hann.Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður fjölskyldu mannsins sem sótti málið gegn íslenska ríkinu, segir dóminn mikinn sigur fyrir fjölskylduna.„Hann lést í í janúar 2014 og síðan lét ríkið, eða Háskóli Íslands og læknadeild Íslands, og Landspítalinn létu vinna skýrslu og sú skýrsla varpaði ljósi á allt það misferli sem hafð