Annaðhvort er Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, komin að endalokum eða hún skiptir um ham. Þetta segir Páll Óskar Hjálmtýsson í þriðja þætti Pólitískra vindvéla Evrópu á Rás 1. Keppnin sé samtímaspegill en nú sé komið að vatnaskilum.Nýlega birti fjölmiðillinn New York Times mikla úttekt á framgöngu Ísraels í keppninni á síðustu árum, frá því innrás þeirra hófst á Gaza sem hefndaraðgerð eftir hryðjuverk Hamas. Í úttekt blaðsins kemur fram að hin herskáa ríkisstjórn Ísraels óttaðist svo mikið að óvinsældir Ísraels kæmu í ljós að stjórnin hefur eytt, að því er talið, hundruðum milljóna í að hvetja gyðinga víða um heim og annað stuðningsfólk Ísraels til að kjósa atriðin sín eins oft og leyfilegt er.Ísraelar fóru af stað með mikla auglýsingaherferð í aðdraganda Eurovision til