Guðjón skipaður forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri

Guðjón Hauksson hefur verið skipaður forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri til fimm ára frá 1. júní. „Ákvörðun ráðherra er í samræmi við álit ráðgefandi hæfnisnefndar sem mat Guðjón hæfastan umsækjenda til að gegna embættinu,“ segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.Guðjón hefur starfað sem forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands frá árinu 2017. Áður var hann deildarstjóri við sömu stofnun í fjögur ár. Embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands verður auglýst laust til umsóknar innan skamms.„Guðjón hefur víðtæka menntun og starfsreynslu á sviði heilbrigðismála og heilbrigðisþjónustu. Hann lauk B.S. prófi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands árið 2006, meistaragráðu frá Boston University School of Public Health á sviði rannsókna tengdum heilbrigðisþjónustu árið 2012 og meistaragrá
Guðjón skipaður forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd