Hagsmunasamtök heimilanna hafa sent Persónuvernd kvörtun vegna nýrrar gjaldtöku Creditinfo Lánstrausts fyrir aðgang einstaklinga að eigin lánshæfismati. Samtökin telja gjaldtökuna ólögmæta og segja hana torvelda fólki að nýta lögbundinn rétt sinn til upplýsinga um eigin persónuupplýsingar. Creditinfo tekur nú 2.900 krónur í gjald fyrir aðgang einstaklinga að eigin lánshæfismati. Gjaldið er 1.990 krónur ef viðkomandi samþykkir að deila svokölluðum viðbótarupplýsingum...