Hildur fundar einslega með þremenningunum

Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík sendi Ara Edwald oddvita Miðflokksins, Björgu Magnúsdóttur oddvita Viðreisnar og Einari Þorsteinssyni oddvita Framsóknar fundarboð í morgun þar sem ræða á myndun nýs meirihluta í borginni.Hildur sat fund hafnarstjórnar fram að hádegi og búist er við að fundirnir með oddvitunum hefjist upp úr hádegi.Hildur fundar einslega með hverjum og einum, ekki hafa fengist upplýsingar um fundarstaði, en samkvæmt heimildum fréttastofu verða fundirnir þrír á mismunandi stöðum. TÍÐINDA GÆTI VERIÐ AÐ VÆNTA UM HELGINA Samkvæmt heimildum fréttastofu er ólíklegt að tilkynnt verði um veruleg tíðindi í dag. Hildur er sögð ætla að fara yfir niðurstöður þessara funda með sínu baklandi síðdegis og í kvöld. Það yrði þá um helgina, líklega á morgun, sem til
Hildur fundar einslega með þremenningunum
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd