Hypjið ykkur, Bandaríkin!

Rúmlega fimm hundruð manns söfnuðust saman til mótmæla í gær við nýja ræðismannsskrifstofu Bandaríkjanna í Nuuk á Grænlandi. Nýja skrifstofan, sem er á þremur hæðum, var opnuð í gær.„Hypjið ykkur, Bandaríkin!“ kölluðu mótmælendur fyrir utan nýju ræðismannsskrifstofuna. Margir voru með grænlenska þjóðfánann og spjöld sem á stóð: Make America Go Away eða: Fáið Bandaríkin til að fara í burtu og: We are not for sale eða: Við erum ekki til sölu.Rúmlega 500 manns mótmæltu nýrri ræðismannsskrifstofu Bandaríkjanna sem opnaði í gær í Nuuk á Grænlandi. Mótmælendur sneru baki í bygginguna og sögðust ekki vera til sölu.Það hefur verið mikil spenna milli Bandaríkjanna og Grænlands og Danmerkur vegna ásælni Bandaríkjaforseta í Grænland, sem náði hámarki í lok janúar. Kenneth Howery, sendiherra Bandaríkj
Hypjið ykkur, Bandaríkin!
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd