Íbúar neyðarskýlis Rauða krossins í Borgartúni voru fluttir á brott þaðan í morgun.Umsókn þeirra um alþjóðlega vernd var hafnað en ekki hefur verið hægt að vísa þeim úr landi, af ýmsum orsökum.Dómsmálaráðuneytið endurnýjaði ekki samning við Rauða krossinn um húsnæðisstuðning við fólkið og neyðarskýlinu var því lokað. FÓLK SEM HEFUR VERIÐ SYNJAÐ UM ALÞJÓÐLEGA VERND HÉR Á LANDI Samningur dómsmálaráðuneytisins og Rauða krossins um rekstur neyðarskýlisins rann út um mánaðamótin.Jón Brynjar Birgisson, sviðsstjóri aðgerðasviðs Rauða krossins, segir samningnum hafa verið komið á fyrir um þremur árum í kjölfar lagasetningar um að fólk, sem neitaði samstarfi við stjórnvöld eftir að hafa verið synjað um alþjóðlega vernd, yrði svipt rétti á opinberri þjónustu.„Og það sem blasti við á þeim tímapunk